Prófíll

  • Nafn: María Sigurrós Ingadóttir
  • Staður: Bolungarvík/Mývatnssveit
  • Atvinna: Sjúkraliði - Djammari
  • Hjúskaparstaða: Á föstu ;) Ómar Zarioh sá heppni :p
  • Um mig: Ég er ung snót sem er að smella í 20 árin. Hef gaman af lífinu og þá sérstaklega að stunda áhugamál mín sem koma fram í mikilli drykkju og afbrigðilegu kynlífi, stunda ég líka Motocross fyrir sjálfa mig og hjóla um sveitir með Kærastanum eins oft og við getum það er að segja þegar hin áhugamálin eru ekki í stundun ;p Gott er að koma saman í góðra vina hóp :) með gosbólur við hönd það er góður dagur ;)

Auglýsing

Atburðarteljari

Innskráningar kubbur

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Bloggað frá b.c.

31. janúar 2008 klukkan 12:31

Næsta bloggi verður bloggað frá fyrrum heimssíðu minn:

www.blog.central.is/choukneymorgan

þið sem veltið fyrir ykkur erfiði nafsins á síðunni .. þá er um það að segja að mangó CHOUKNEY einhver skonar krydd .. og þar sem Mangó var hundurinn minn og Síðan svona hel krydduð þá kom nafnið choukney! tja seinna nafnið er heldur auðveldara .. drekk alltaf captein Morgan í den tid og þar hafi þið það ;)

María Sigurrós Ingadóttir
1 athugasemd

Góð helgi að baki..

28. janúar 2008 klukkan 16:36

Þá er frábæri helgi lokið, ábyggilega sú skemmtilegasta í langan tíma .. ég fór heim í sveit á fimmtudaginn að undirbúa þorrablót og við systur mölluðum þorrabakka fyrir hátt í 20 manns, nema hvað að við vorum 6 stykki. Við sveitungar blótuðum þorran sem sagt á föstudagskveldið og það var alveg ljómandi skemmtun, maður skildi ekki skemmtiatriðin frekar venju en ég hló samt með hinum þegar við átti :D kl 01:00 fór ég hin edrúa Mæsa á stað til Grenivíkur, fólk var nú ekki alveg að ná upp í það að ég væri ekki golgóma eins og oftast yfir haus en ég tók bara ýmindunar fyllerí á þetta ;) 

kl 02:00 að staðartíma mæti ég á Grenivík og vakti hana Sísý til að leiðbeina mér á áfangastað, svo var bara skriðið í ból..

Klukkan 8 hundruð var svo ræs og þá byrjaði fjörið við gellur græjuðum okkur á sleðanna og fórum upp í fjall!!  það var svo keyrt alveg eins og enginn væri morgundagurinn og gaman að sjá hvað maður varð nú betri með hverjum hringnum :) það var nú líka þreyta í mönnum um kveldið og held að fólk hafi svona almennt skriðið snemma í rúmið  .. Sunnudagurinn var heldur erfiðari þar sem mig verkjaði frá tánöglum og fram í hársenda .. sjæsinn .. en það var ekkert hægt að grenja það endalaust og það skánaði þegar maður keyrði tugguna í angist lostans. Um 1 leitið var ekki sjáandi lengur svo við héldum down town og skelltum kvekindunum á palla og kerrur. Heim var svo haldið með helminginn af dótinu og djíi næs að fara í lónið og liggja svo í sófanum restina af kvöldinu ;)

Ég held ég verði að þakka fólki hér í lokinn:

Þakka Ómari fyrir mega smega jólgjöf :*

Þakka Stefáni Gunn og fjölsk fyrir að lána mér tryllitækið a.k. the Mæsuna :)

Þakka frábæru fólki fyrir frábæra helgi

og ekki má gleyma að þakka Sísý fyrir að vera töff herbergisfélagi :)

og já jú ég þakka fyrir mig

~ Mæsan

María Sigurrós Ingadóttir
4 athugasemdir

Helgin að nálgast..

22. janúar 2008 klukkan 12:36
Jæja þá er að koma að þessu.. Sleðaskólinn á föstudaginn og maður yðar bara í skinninu af spenningi, tja fyrir utan kannski að hafa aldrei verið neitt á sleða en so fokking what .. þetta verður mega smega stuð ..

Þorrablót mývetninga er líka um helgina a.k föstudaginn, það er ekki gaman að missa af því reyndar en það verður aftur að ári ;) þetta er nú ekki allt komið á hreint, við skulum nú fyrst sjá hvort það verði einhver snjór (það er nebblega rigning eins og er) svo er ekki búið að ákveða staðinn 100% þannig þetta á allt möguleika...

Ég skellti mér í ljós áðan og sauðurinn ég hef ekki einu sinni pælt í því hvort það sé klukku stæði eður ey þarna hjá sólbaðsstofunni, aldrei sett klukkudjöfull í rúðunna svo það kom að því að ég fékk sekt áðan.. pifff svona mundi ekki gerast í Mývatnssveit það er nokkuð ljóst.

en já svo er það pæling um að skipta aftur í gamla bloggið, gæti rifjað upp gamlar minningar ;)

kv Mæsan
María Sigurrós Ingadóttir
4 athugasemdir

ég er Typpatryllir og master of 1o kr !!!

18. janúar 2008 klukkan 13:41
Já Sæll kjellinn.. ég ákvað í gær hingað og ekki lengra.. nóg komið að því að gera ekki neitt svo ég kvað Byljgu og Mörtu á barinn !!!

það var reyndar very Næs.. við skelltum okkur á Amor um 10 leitið og ætluðum að stoppa í 2 kalda.. einhvernegin þegar maður er búinn að ákveða tölu bjór sem á að drekka, gleymir maður alltaf að margfalda hana með sjálfri sér. Bjórarnir urðu sem sagt fleiri en ætlaði. Hvað sem lýður þurftu Marta og Bylgja alltaf að fóðra krabbann reglulega og á meðan laðaði ég að mér drukkna húsasmiði, það var svona alveg stórskemmtilegt að rugla í kjellunum .. já sei sei ég gat allavega helgið að vitleysunni... við Stúlkurnar tókum líka hin alræmda Pizzadans og ekki má gleyma íslenska þjóðdansinum sem Bylgja á höfundarréttinn af. Til að kóróna kveldið tókum við lombó keppni sem ég að sjálfsögðu rústaði !! þessir spítukalla vinir sem maður á ... hehe

upp úr stóð pikköpplínan : Þú ert sannkallaður typpatrillir:)

og ekki má gleyma 10 kallabrandara dauðans þegar maðurinn reyndi að þvinga upp á mig skoti. hann sagði : viltu skot? plís hvarnig skot á ég að gefa þér? Mæsan svarar um hæl: heyðu mig vantar einmitt skot í 22 kalibera riffilinn minn ... og Búmsjey líðurinn trylltist !!!

Svo maðurinn sem frussaði öllu út úr sér og maður varð virkilega blautur í framan við að hlusta á hann... 

æi Þetta var snelld...

Helgin humm við Ómar ætlum í Mömmó og ég ætla að borða svera pizzu og skola henni niður með bjór ;)

en later..

Mæsan
María Sigurrós Ingadóttir
2 athugasemdir

vá þetta er um ekki neitt ..

15. janúar 2008 klukkan 20:29
Veit ekki alveg hvort ég nenni að blogga ... er samt að hugsa um að gera það !!

Hvað skal segja.. ég er enþá í skólanum þó lítill sé og þess á milli fer ég í ræktina og sit svo á rassinum að gera ekki neitt ... held ég sé komin með legusár.

nei hey þess má nú geta að ég gerðist mjög menningaleg á mánudaginn og fór á fyrirlestur um snertinugu frá vöggu til grafar, já gott fólk þetta var svona líka gefandi. Ég fór með par af gleraugum þó ég noti ekki gleraugu en mér finnst alltaf svo viðeigandi að vera með gleraugu á svona samkomum, gerði mitt besta í að kinka kolli þegar við átti og hlæja svo mjög sannfærandi hlátri þegar fyrilesarinn viðurkenndi í fallegum orðum að hún væri heví sveitt undir höndunum af stressi.

Annars er Ómar minn hérna á Akureyrinni núna að vinna fyrir salti í grautinn og það er nú ekki amalegt að hafa hann til að ylja manni á tásunum seint að kveldi...

æi fokk ég hef ekkert að segja....

ble blu Mæsan
María Sigurrós Ingadóttir
1 athugasemd

ársbyrjun...

08. janúar 2008 klukkan 11:51
Fór í skólann í gær að sækja stundatöflunan mína og komst að því að það er betra að byrja á staf seint í stafróinu eins og t.d einhverju frá L - Ö .. þess vegna mun barn mitt heita Ögmundur eða kannski held ég mig bara við Mörður læmingi.. spurning..??

Stundataflan inniheldur 9 einingar sem þýðir c.a 2 tímar á dag og sagan verður í fjarnámi.. og þá er ekkert annað að gera en að sækja um vinnu og ég vil ekki vinna um helgar.. humm hver ætli ráði mig ??

ég er að hugsa um að stofna símatré!! þar sem hver vinur fær einn dag og á þeim degi er skilda að hringja .. held að maður haldi betur sambandi á þann átt, ekki frá því sko...

Farið verður í sleðaskólann helgina 25 jan það er ákveðið, búinn að fá sleða og allt :) held það verði stuð ..

ég er byrjuð að drekka Lite bjór og vodka í vatn en á sunnudögum þá er ég grand og fæ mér gin í Sprite zíró og að sjálfsögðu með slæs og læm...

Núna þarf ég að fara út að labba með hundinn.. vá ég held ég meiki ekki að taka upp kúk í poka og geyma hann í vasanum þanngað til ég kem að væstu ruslatunnu..

kv Mæsan
María Sigurrós Ingadóttir
6 athugasemdir

Árið gert upp..

03. janúar 2008 klukkan 11:50

Jæja gott fólk .. ýmislegt gerðist á árinu svo sem ..

Janúar: Menntaskólin á Ísafirði stundaður og flogið  norður 2 helgar eða svo djammað á hinu árlega þorrablóti mývetninga og djammað á öðrum góðum stöðum með góðu fólki, Thelmu fór sómasmalega fram og var þar mikið gaman :)

Febrúar: Árshátíð Menntaskólans fór fram, við Jónína tókum eitt villt game, Ómar og ég náðum þeim áfanga að vera búinn að vera saman í 1 ár :*, Svava datt í 20 árin og Elsa í 18 :)

Mars: Ómar varð 26(+10)  ára þann fjórða ;) og þá var maður að sjálfsögðu á Mýv. Undankeppnin fyrir söngvakeppni framhaldsskóla fór fram, leiðindar skóli hamlaði smá djammi en páskafríið byrjaði stundvíslega 30 mars :)

Apríl: Ingvar, Ómar, ég og Pabbi fórum til Aðalvíkur sem var tær snelld, " það er gott að eiga bát" eins og maðurinn sagði .. Aldrei fór ég suður stóð fyrir sínu :) Við Elsa og ELísa fórum í rodetripp til Akureyrar til að hlýða á söngvakeppni framhaldsskóla og var gríðalegt stuð hjá okkur vinkonum .. gistum í frábærum húsakynnum niður á eyri .. góð helgi marr tótallý góð .. 20 apríl fluttum við feðgin úr stóra gula húsinu :( maður saknar þess en það er fínt að vera í nýja húsinu. Árgangur ´87 dimmiteraði svo allrækilega í búningum engla sem við erum og var það crazzy gaman .. !! Martan mín varð 21 á árinu ;)

Maí: Lokaprófin hófurst í MÍ og lauk þeim þann 23, þá var lítið annað að gera an að pakka niður og halda norður.. já Mæsan flutti í sveitinna  .. Byrjaði að vinna á Sjúkrahúsinu á Húsavík.... Elísa og Bylgja urðu 20 ára:) og Guggan mín 23 ára

Júní/Júlí: Þessir mánuðir fóru að mestu í vinnu og að drekka umtalsvert að bjór þess á milli... Hjólið var tekið fram við næstum hvert tækifæri og var það mest gaman:) en aðalega var það vinna vinna ... Ma og Pa komu í heimsókn sitt hvoru helgina og við Ómar fórum eina helgi í sumarbústaðinn hennar mömmu.. Guðjón varð 19 ára :) og Arndís 21 :)

Ágúst: Fór líka aðalega í vinnu, drykkju og hjólamensku en í enda mánaðarins hófs skóli á nýju og þá byrjaði ég í Verkmenntaskólanum á Akureyri ... Maður var þó ekki alveg einn heldur var Marta þar einnig, Anton og Kata líka :) Soffía varð 18 ára :)

September: Fór vestur með Ingvari bró að heimsækja pa.. Anton og Einar urðu 18 ára.. fór líka á sauðakrók með soffíu og sigga á laufskálarétt þar var bara stuð og þá helst að hitta Bylgjuna :) Þuríður varð 23 ára :)

Október: Skóli, rækt, Skóli .. Ómar og ég fórum svo vestur um löngu helgina :) gaman gaman .. Konukvöld var haldið í skólanum sem var mjög fínt að fara á .. hið árlega Slægjuball var haldið í sveitinni og að sjálfsögðu var þar drukkið og dansað..

Nóvember: Árshátíð sjúkrahúsins á Húsavík var fyrstu helgina og ég Kolla og Hanna skemmtum okkur prýðilega. Helgina eftir hélt ég upp á snemmbúið afmæli þar sem 10 lítrar af sveitasnakki voru blandaðir í 24 lítra af sprite og kassa af macik :) og allt var drukkið .. frábær helgi með meiru ;)  Guðrún Fanney eignaðist hana Kristínu 16 Nóv .. algjör engill þar á ferð :) Mývatns lazaníapartý var haldið .. :)

Desember: Mæsan varð 20 ára !!!  Lokapróf í skólanum.. Rannveig sys varð 35 ára.. náði prófunum.. Ingvar bró varð 21 árs og Jónína 25 ára .. ég fór vestur til pabba og svo suður til Mömmu þar sem við Ómar eyddum Jólum og áramótum sem var alveg magnað .. gat ekki verið betra :D  


Þá þakka ég bara gott ár krakkar mínir ;)


kv Mæsan
María Sigurrós Ingadóttir
3 athugasemdir

hóhó

02. janúar 2008 klukkan 16:52
Mæsan og ómar óskum vinum og vandamönnum Gleðilegra jóla og gleðilegs nýs árs... takk og bless ;)

Komin í sveitina góðu, frábær jól og áramót með meiru ...

kv Mæsan og kjellinn
María Sigurrós Ingadóttir
1 athugasemd

fullt af frábærum fróðleik

12. desember 2007 klukkan 10:30

Já Sæl veriði ... situr maður bara hérna á rassgatinu og borar í nefið þegar maður á að vera að læra fyrir næsta próf.. það eru 4 búinn og 2 eftir .. humm fór á jólahlaðborð um helginna með vinnunni hans Ómars sem sagt Kröflu.. held bara að það hafi verið stuð umm eða bíddu ég man það ekki, var alveg svart golgóma!! byrjaði að drekka heima bjór og hvítt þegar við komum í Selið drakk ég blóðugan fordrykk en það var svo kjellingalega væmið að ég dreif mig í einn tvöfaldan á barnum. Boðhaldið hófst svo og maturinn svona ágætur og svo var boðið upp á kjeffi og koníak eftir dinnerið og aðsjálfsögðu gúffaði ég einu glasi í mig með engu kjeffi þó, er ekki orðin nógu stór enþá fyrir svoleiðis óþvera. Kokks djöfullinn í Kröflu bauð svo upp á sykurleðju í mjög svo væmnri útgáfu ég gat ekki annað en að sína þá fágun og slurkaði þessum horbjóði í mig, þá er ég ekki frá því að ég hafi skolað drykknum niður með hálfri hvítvín af stút. Ég dansaði við einhverja kalla, ef ómar fær stöðuhækunn þá er það af því ég dansaði við yfirmanninn eða kannski dróst ég vona meira eftir honum, eftir dansinn bauð kjellin annað koníak ég drakk sullið og man ekki meir.... vaknaði einhverjum klukkutímum seinna og hafði þá ælt öllu sem í innbyrð þann daginn. Þynnkan fór líka í það að æla grjónagraut og bakkelsi :)


Helginn fer í mömmu leik þar sem ég leik vondu stjúpunna sem var borinn burt af barndaverndanefnd vegna of mikillar bjórdrykkju það er mitt hlutverk í sögunni ;) Ómar verður maðurinn með sjúklega kynlífsfíkn í þessa drukknu stjúpu hehe ;)

Afrek mánaðarins:
jólagafir keyptar = 0
Bjór drukkinn = margir
Bakaðar kökur = 0
Blandari til að hrissta kokteila = 1
Amerískur Siemens ískápur með klakavél = 1


Svo vil ég þakka fyrir allar sendar og ósendar afmæliskveðjur og ef þið eru úti að spássera og sjáið svo allt í einu hroðalegan glampa þá vil ég bara segja ykkur að það er nýja D&G demants úrið mitt sem Ómar gaf mér ;)

kv Mæsan
María Sigurrós Ingadóttir
7 athugasemdir

JÓJÓ

05. desember 2007 klukkan 09:49
ÉGGGG ERRRR TVÍTUGUR Í DAG .... NENNI EKKI NEINU Svalur




FARINN Í BIRRAN MY FRIEND

SOLLON.. MÆSAN GOING WILD
María Sigurrós Ingadóttir
6 athugasemdir